11.6.06
Humm.

Ég hef ekki neitt merkilegt að segja lengur, get ekkert, á ekkert, hef ekkert, kann ekkert, ég er hættur þessu.





5.5.06
Í dag

er ég lík eftir brölt gærkvöldsins. Langaði bara að koma því á framfæri.

Lag dagsins er Witchy Woman með Eagles, stórgott lag sem ég mæli virkilega með.





29.4.06
Fanney

Þetta blogg er tileinnkað vinkonu minni Fanney sem lést úr krabbmeini í nótt 21 árs gömul. Ég vona að þú fyrirgefir mér það að ég leit ekki við hjá þér síðustu dagana eins og þú varst búin að biðja um. Ég gat ekki umberið það að horfa á þig lengur og aðhafst ekkert, það er bara ekki ég. En ég mun aldrei gleyma fyrsta skiptinu sem ég sá þig í VMA haustið 2000 í hinum frábæra tíma örverufræði 102. Þú verst sú eina með viti þarna inni að mér fannst, hinir voru eitthvað svo óþroskaðir að sjá. En þú ákvaðst að brjóta ísinn þrátt fyrir að ég væri eins og ég var, steig ekki í lookið en þú byrjaðir að búa til vináttu sem var engri lík.

Fanney, takk fyrir allr þær yndislegu stundir sem þú gafst mér og ég vil þakka þér fyrir að leyfa mér að taka þátt í lífi þínu. Þú hefur gert mig að betri mannsekju en ég hefði annars orðið án efa og ég mun alltaf elska þig hvernig sem á stendur. 

Og því mun ég koma með uppáhaldssetninguna þína sem er að sjálfsögðu mín líka úr U2 lagi sem þú komst mér upp á:

"And your heart beats so slow
Through the rain and fallen snow
Across the fields of mourning to a light that's in the distance."

U2, A Sort Of Homecoming. 1984

Fanney hvíldu þig vel því þú átt það skilið eftir erfiða baráttu, takk fyrir mig...
Þinn vinur Kári Jósefsson





29.3.06
Helgin

Já, það var fín helgi síðast! Ég og Ragnar vorum í gríðargóðu stuði og þeyttum skífum á Hetjunni af mikilli snilld. Það var gjörsamlega pakkað á staðnum og hef ég ekki séð jafn mikið af fólki á þessum stað áður... sérstaklega ekki á dansgólfinu.

Maður brá sér að sjálfsögðu í 70-80 fílinginn og var vel samkynhneigður í útliti á tímabili með skyrtuna girta og mjög litskrúðugt bindi.

Gay gay gay!!!

En jæja, læt þetta duga, Lag dagsins er Su Su Sudio með Genesis/Phil Collins, alveg magnað lag sem við tókum á föstudaginn og fólk dansaði af sér rassgatið við.





19.3.06
Nöfn takk

Já, hverjir koma á þessa síðu, sá að Arna gerði þetta, þannig að ég ætla að fullvissa mig um að ég sé ekki að eyða tíma í blogg sem lesa mig ekki.

Plís skiljið eftir nafn í kommentið!

Lag dagsins er Dirty Harry með Gorillaz, geggjað gott lag sem ég verð að segja það besta eftir þá félaga. Missið ekki af þessu!





18.3.06
Jú ég er búinn að slá heimsmet

Í ógeðslegheitum og viðbjóði. Ég staðfæri að ég sé í dag þynnsti maður á lífi, ef ég væri þynnri, þá væri ég lík.

Þannig að lag dagsins verður að vera freska, eins og td. Feeling Oblivion með Turin Brakes, þetta lætur renna af manni, þannig að maður er ekki alveg jafn rotinn.





Next Page
 



karijobba
July 4th
Male
Egilsstaðir


   





 




 
Contact Me

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:




rss feed