14.3.06
Það hefur verið hringt...

Þannig að ég verð að halda áfram að skrifa hvort sem ykkur líkar betur eða verr.

En í fréttum hjá mér er samt sem áður mjög lítið, ég vinn eins og skepna og geri fátt annað... nema þá kanski að fara út á djammið öðru hvoru.
Núna fer samt að styttast í að maður kíki í bæinn og heimsæki vinina þannig að gerið þið ykkur klár því ég kem... fljótlega.

Egilsstaðir eru svo leiðinlegir að það hálfa væri held ég alveg yfirdrifið, allavega hvað varðar skemmtanalíf og aðra skemmtilega iðju. Reyndar var ágætt um síðustu helgi þar sem Hermigervill, Dikta og Ampop voru að spila í Menntaskólanum, það var frábær skemmtun og skemmti ég mér konunglega allavega.

Portishead er að fara að gefa út nýja plötu mér til mikillar lukku og yndisauka, sömuleiðis Radiohead, Massive Attack og DJ Shadow, þannig að ég á eftir að fara á hausinn vegna CD kaupa einhverndaginn ef hann heldur áfram að lengjast þessi blessaði listi.

Lag dagsins er Biscuit með Portishead, úfff, þessi plötusnúður er náttúrlega ekkert eðlilegur þegar hann tekur gamla Johnny Ray og samplar það út í eitt.





12.3.06
Já, búið

Þetta er ekki að meika það hjá mér lengur, þannig að ég segi upp þessari iðju í bili allavega. Ég er ekki með neinar ferskar humyndir eða neitt, þannig að tilgangurinn er enginn. þeir sem eru ósáttir meiga rífa upp símann og kvarta í síma 867 2715 eða senda póst á karijobba@simnet.is, aldrei að vita nema maður eigi eftir að byrja aftur, en þangað til... bæbæbæbæbæbæbæbæ

Lag dagsins er Deep blue með Leaves, það minnir mig alltaf á það sem maður vill en veit að verður aldrei!





22.2.06
Dagur í lífi Kára

8:20 - Vakna
9:00 - Kaffidrykkja hefst
9:10 - Enn meiri drykkja hefst
9:15 - Enn enn meirir drykkja heldur áfram
10:00 - Kári fer að do some actual work
10:01 - 21:00 þessi tími er svolítið í móðu, vona samt alla daga að ég hafi gert eitthvað gagn.
21:05 - Nilsen og fengin sér kaffi í fleirtölu
21:45 - Kári fer heim og baðar af sér viðbjóð dagsins
22:30 - Maður heldur að maður hafi orðið temmilega ferskur af sturtu sem varði í 45 mín, en nei, ég er jafn ljótur og ógeðslegur fyrir vikið.
23:30 - Ég fer að nördast í tölvu.
02:00 - fer að hugsa mér til svefns
03:00 - Vakna við vondan draum um að ég ligg andvaka
03:30 - sofna

Ákvað nú bara svona að deila þessu með ykkur ef þið hafið áhuga. Ég er nú ekki það duglegur að skrifa á þetta blessaða blogg mitt sökum leti og vinnu. ÞEgar ég sest fyrir framan tölvuskjáinn þá er andleysi og almennur heiladofi sem er allsráðandi.
Ég vil hér með biðja einhvern um að koma í heimsókn til mín, bara til að brjóta þetta aðeins upp ég er nefnilega alveg að trompast úr félagsleysi, ég á eftir að stökkva út einn daginn með haglabyssu og skjóta einhvern bara til að löggan geti tekið mig fastann og yfirheyrt mig, þá er allavega komið eitthvað líf í þetta. En best að hætta þessu svartsýnis röfli um ekkert og grjóthalda kjafti bara.

Lag dagsins er A Sort Of Homecoming með U2, úffffff hvað get ég sagt, þetta er yndislegt lag sem maður kolfellur alltaf fyrir... draumkendur texti Bono í takt við ógeðslega flottan gítar The Edge... nammi.





19.2.06
Persónan Kári

Rakst á þetta hjá Vallý, þetta er áhugavert.

http://kevan.org/johari?name=karihlidar

Lag dagsins er They can't buy the sunshine með Turin Brakes, æðislegt lag sem hlýjar manni verulega um hjartarætur þega maður er einmanna.





15.2.06
Það er eins og mig grunaði

Ég er bara ógeð, tók þetta próf og ég fékk ekki svo mikið sjokk þegar niðurstöðurnar voru ljósar.

***You're A Passed Out Drunk***


Drinking gives you that warm fuzzy feeling, until you're thrown in the back of a police car...

Takið þetta próf og látið mig vita!
What Kind of Drunk Are You?
http://www.blogthings.com/whatkindofdrunkareyouquiz/

Lag dagsins er Green Eyes með Coldplay, geggjað lag og eitt af mínum uppáhalds.





10.2.06
Enn eitt klukkið

Takk Tinna fyrir að klukka mig, hef ógurlega gaman að svona listum! En hér er þetta...

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:

  1. Skinnaiðnaður á Akureyri - Get sagt það að ég hef verið í skemmtilegri vinnu
  2. Myndsmiðjan á Egilsstöðum - Pabbi er fínn maður
  3. Fosshótel - Great stuff
  4. Prentsmiður hjá Héraðsprent

 Fjórar bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:

  1. Scarface
  2. Ace Ventura
  3. Love Actually
  4. Dumb And Dumber

 Fjórir staðir sem ég hef búið á:

  1. Ásbrún 6 - Fellabæ
  2. Lagarfell 19 - Fellabæ
  3. Sólvellir 14 - Egilsstaðir
  4. Helgamagrastræti 24 - Akureyri

 Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:

  1. Seinfeld
  2. Friends
  3. Scrubs
  4. Simpsons

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

  1. Odense  (Danmörk)
  2. Köben (Danmörk)
  3. Malaga (Spánn)
  4. Malmö (Svíþjóð)

Fjórar síður sem ég skoða daglega (fyrir utan blogg):

  1. www.mbl.is
  2. www.hotmail.com
  3. www.ru.is 
  4. www.mynd.is

Fernt matarkyns sem ég held uppá:

  1.  Sykurlaust Súkkulaði
  2.  Kjúklingur.. já, nánast skiptir ekki máli hvernig hann er
  3.  Hakkbollur ala Pabbi
  4.  Hangikjöt

 Fjórar bækur sem ég les oft:

  1. Fyrstur til að deyja
  2. Annað tækifæri
  3. T. Pratchet - Allt
  4. Þriðja gráða

Fjórir staðir sem ég myndi heldur vilja vera á núna:

  1. Í HR
  2. Sofandi í sólvöllum 
  3. Á sólarströnd
  4. Við hliðina á einhverjum góðum kvenmanni

 Fjórir bloggarar sem ég klukka:

  1. Árni Berúlfur
  2. Elsa
  3. Vallý
  4. Arna
Þar hafið þið það!

Lag dagsins er Stillness In Time með J-kay, snilld, þetta er flottasta lagið eftir þennan gríðalega snilling.




Previous Page Next Page
 



karijobba
July 4th
Male
Egilsstaðir


   





 




 
Contact Me

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:




rss feed